Páll Óskar í heimsókn á söngsal

Páll Óskar í essinu sínu

 

Páll Óskar í heimsókn á söngsal

Nú í morgun kom Páll Óskar í heimsókn á söngsal í Hagaskóla. Kennarabandið spilaði undir og sá um bakraddir. Stundin var frábært og mjög hressandi að byrja daginn á smá diskói auk þess sem við sungum að sjálfsögðu saman Eitt af blómunum sem Palli og Benni sömdu saman. Benni stjórnaði að sjálfsögðu hljómsveitinni en hann heldur utan um verkefnið söngsalur í Hagaskóla. Við syngjum alltaf saman við upphaf dags á miðvikudögum, hver árgangur fyrir sig einu sinni í mánuði og allir saman einu sinni. Hugmyndin með söngsal tengist bæði áherslum okkar á læsi og tungumálið en líka hugmyndum okkar um tengsl og að við stöndum og lærum saman. 

Páll Óskar í Hagaskóla Páll Óskar í Hagaskóla Kennarasleikjurnar spiluðu undir