Grautur fyrir byrjun skóladags
Grautur í boði fyrir nemendur við upphaf skóladags
Nú er orðið fullmannað og velmannað í mötuneytinu hjá okkur þannig að ákveðið hefur verið að bjóða upp á graut fyrir upphaf skóladagsins. Grauturinn verður í boði kl. 8:00 til 8:50 þegar lesstund hefst. Löng hefð er fyrir graut í Hagaskóla og erum við mjög glöð yfir því að geta aftur boðið upp á graut. Við hvetjum nemendur til að mæta tímanlega og fá sér graut fyrir átök dagsins.