Skólasetning og upphaf í Hagaskóla
Skólasetning og upphaf í Hagaskóla
Skólasetning verður mánudaginn 24. ágúst. Í Hagaskóla er skólasetningardagurinn fullur skóladagur þannig að nemendur fara til umsjónarkennara eftir skólasetningu og verða í skólanum til kl. 13:00. Matur verður í hádeginu.
Nemendur mæta á sal í skólasetningu sem hér segir:
- 8. bekkur kl. 9:00
- 9. bekkur kl. 9:30
- 10. bekkur kl. 10:00
Því miður höfum við vegna plássleysis ekki getað boðið foreldrum á skólasetningu en alltaf er nokkuð um að foreldrar 8. bekkinga fylgi sínum börnum og það gengur vel en þið gætuð þurft að standa í salnum. Nemendur fá stundaskrár á skólasetningardaginn.
Á skólasetningardag getur verið gott að koma með skólatöskur en nemendur fá skólagögn og bækur frá skólanum. Í vetur viljum við hvetja nemendur sérstaklega til að koma með vatnsbrúsa með sér til að hafa betra aðgengi að vatni og halda glösunum okkar í salnum.