Skólastarf fellur niður fimmtudaginn 26. mars vegna veðurs

Óveður - mynd fengin af vef Reykjavíkurborgar

 

Skólinn verður opinn en hefðbundið skólastarf verður ekki

Athygli er vakin á því að á morgun, fimmtudaginn 26. mars, hefur verið gefin út appelsínugul viðvörun vegna veðurs á höfuðborgarsvæðinu og gildir hún frá klukkan 7-13. FÓLK ER HVATT TIL AÐ HALDA SIG HEIMA Á MEÐAN ÓVEÐRIÐ GENGUR YFIR Á MORGUN OG VERA EKKI Á FERÐINNI AÐ NAUÐSYNJALAUSU. 

Gefið hefur verið út að hefðbundið grunnskólastarf fellur niður þennan dag. Húsið verður opið en það verður lágmarksopnun með fáu starfsfólki. Samkvæmt skilaboðum frá Skóla- og frístundasviði eru foreldrar þeirra barna sem þurfa að koma í skólann beðnir um að tilkynna skólastjóra það með tölvupósti.