Sumarfrí
Sumarfrí og upphaf næsta skólaárs
Skrifstofa Hagaskóla verður lokuð vegna sumarleyfa frá 19. júní til 6. ágúst.
Skólastarf haustannar hefst samkvæmt skóladagatali mánudaginn 24. ágúst með skólasetningu. Nemendur í 8. mæta á sal kl. 9:00, nemendur í 9. bekk kl. 9:30 og nemendur í 10. bekk kl. 10:00. Athugið að skólasetningardagur í Hagaskóla er fullur kennsludagur þannig að nemendur verða í skólanum til kl. 14:00.
Gleðilegt sumar!