Útskrift og skólaslit í Hagaskóla

Útskrift í Háskólabíói

 

243 nemendur útskrifast frá Hagaskóla

Þriðjudaignn 9. júní útskrifuðust 243 nemendur úr 10. bekk í Hagaskóla. Útskriftarathöfnin fór fram í troðfullum stóra salnum í Háskólabíói en hún samanstóð af hefðbundnum ræðuhöldum, afhendingu vitnisburðar og tónlistaratriðum frá nemendum. 

Hagaskóla var svo slitið með nemendum í 8. og 9. bekk í dag, 10. júní og sumarfrí er hafið.

Skrifstofa skólans verður opin til 16. júní en síðan lokuð til 10. ágúst. Hægt er senda póst á skólastjóra eða aðstoðarskólastjóra ef áríðandi mál koma upp. 

Starfsfólk skólans óskar öllum gleðilegs sumars og við hlökkum til að sjá nemendur aftur þegar skólinn verður settur þann 24. ágúst.