Hagskælingur sigurvegari í Pangea stærðfræðikeppninni
Kormákur Jónas í 8. bekk sigurvegari í Pangea stærðfræðikeppninni
Pangea stærðfræðikeppninni lauk í apríl. Kormákur Jónas Níelsson, nemandi í 8. bekk í Hagaskóla, gerði sér lítið fyrir og vann keppnina í flokki 8. bekkinga. Pangea stærðfræðikeppni er fyrir alla nemendur áttundu og níundu bekkja grunnskóla landsins. Aðalmarkmið keppninnar er að vekja áhuga hjá ungu fólki á stærðfræði, hvetja þau sem halda að stærðfræði sé of erfið til dáða með því að sýna þeim að þau geti afrekað mikið ef þau reyna, og hvetja efnilegustu nemendurna til áframhaldandi afreka.