Kærleikurinn í anda Bryndísar Klöru

Frá ljósmyndasýningu í Hagaskóla

 

Farandljósmyndasýning í Hagaskóla

Gildi marsmánaðar í Hagaskóla er kærleikur og nú stendur yfir farsældarvika í sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu. Í upphafi mánaðarins tókum við á móti farandljósmyndasýningunni Kærleikurinn í anda Bryndísar Klöru. Sýningin hefur verið sett upp á ganginum á fyrstu hæð í aðalbyggingunni. Ljósmyndasýningin hóf göngu sína þann 30. ágúst 2025 í Klébergsskóla en markmið hennar er að minna á mikilvægi þess að sýna kærleik og samkennd og vera í góðri samvinnu við aðra. Þannig gerum við heiminn betri. Áður hefur sýningin hangið uppi í Foldaskóla, Vogaskóla og Austurbæjarskóla. Nemendur munu taka þátt í umræðum og vinna verkefni tengt sýningunni og gildi mánaðarins. 

Um Riddara kærleikans

Riddarar kærleikans er hreyfing fólks sem vill lifa í samfélagi þar sem kærleikur ræður ríkjum. Á erfiðum tímum lagði faðir Bryndísar Klöru til að við myndum öll verða Riddarar kærleikans – með því að gera kærleikann að eina vopni okkar í samfélaginu. Í kjölfarið varð hreyfingin Riddarar kærleikans til.

Verkefnið byggir á virðingu fyrir fórnarlömbum ofbeldis og þeirri von að við getum sameinast um að skapa betra og öruggara samfélag fyrir komandi kynslóðir. Í öllum samskiptum leggjum við áherslu á að miðla þessum boðskap af heiðarleika og hlýju. Athugið að mörg börn hafa þörf fyrir að ræða um geranda verknaðarins í máli Bryndísar Klöru og er í því sambandi hægt að segja börnunum að aðstandendur Bryndísar Klöru vilja að hennar fráfall leiði til góðs. Við eigum ekki að leyfa reiði og hatri að fá sviðið heldur einblína á kærleikann og mikilvægi hans. Hægt er að fá frekari upplýsingar á minningarsíðu Bryndísar Klöru https://mbk.is og Riddarar kærleikans https://riddararkaerleikans.is