Stuðningsþjónusta
Stefna Reykjavíkurborgar um sérkennslu og stuðning hefur skóla án aðgreiningar að megin leiðarljósi. Í því felst að skólinn veiti öllum nemendum sínum þjónustu fötluðum jafnt sem ófötluðum. Kennaranum er ætlað að aðlaga kennslu sína að nemendahópnum og þarf því að beita mismunandi kennsluaðferðum og vera með mismunandi viðfangsefni fyrir nemendur sína.
Námsráðgjöf
Námsráðgjafar við skólann eru tveir og veita þeir nemendum persónulegan og félagslegan stuðning í námi.
Menntun fyrir alla
Í grunnskólum Reykjavíkur er sérhverju barni mætt í námi óháð atgervi þess og stöðu
Heilsugæsla
Skólaheilsugæsla sinnir skipulagðri heilbrigðisfræðslu og hvetur til heilbrigðra lífshátta.
Stuðningsþjónusta í Hagaskóla
Í Hagaskóla er starfandi öflug stoð- og sérfræðiþjónusta fyrir nemendur skólans. Skólinn er í samstarfi við Vesturmiðstöð en þar eru m.a. starfandi sálfræðingur, félagsráðgjafi og kennsluráðgjafi sem þjónustar skólann eftir þörfum. Innan stoðþjónustu skólans starfar deildarstjóri, námsráðgjafi, iðjuþjálfi, nemendaráðgjafi, tómstunda- og félagsmálafræðingu og sérkennarar.
Stoðþjónustan leitar allra leiða til að koma til móts við þarfir þeirra nemenda sem þurfa og í góðri samvinnu við foreldra.
Deildarstjóri nemendaþjónustu er Áslaug Pálsdóttir
Farsæld barna
Ný lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna hafa tekið gildi. Markmiðið er að tryggja að börn og forsjáraðilar fái rétta aðstoð, á réttum tíma, frá réttum aðilum.
Fjölskyldum og börnum sem þurfa snemmtækan stuðning er tryggður aðgangur að tengilið farsældar í nærumhverfi barnsins, svo sem í leikskóla eða grunnskóla. Tengiliður farsældar veitir upplýsingar og leiðbeiningar um þjónustu og stuðlar að því að börn og forsjáraðilar hafi aðgang að þjónustu án hindrana.
Til að óska eftir samþættri þjónustu geta börn, ungmenni og forsjáraðilar haft samband við tengiliði farsældar:
Tengiliðir Hagaskóla eru: