Um Hagaskóla
Hagaskóli tók til starfa í hluta núverandi húsnæðis 1. október 1958. Skólinn er beint framhald skóla þess er nefndist Gagnfræðaskólinn við Hringbraut, og var í leiguhúsnæði að Hringbraut 121. Sá skóli tók til starfa 1. október 1949. Hagaskóli var byggður í áföngum 1956 - 1963. Byggingaframkvæmdir hófust að nýju veturinn 1988 - 1989. Byggð var ný álma meðfram Dunhaga með 7 kennslustofum. Í kjölfar þess að mygla greindist í hluta húsnæðis skólans árið 2022 hefur stór hluti þess verið endurbyggður, búið að bæta við tímabundnum lausum kennslueiningum og drög lögð að nýbyggingu á næstu árum.
Safnskóli fyrir Vesturbæ
Skólahverfi Hagaskóla er allur Vesturbærinn, frá flugvelli og Lækjargötu út að Seltjarnarnesi. Tvísetningu lauk 1976 og varð þá kleift að vinna við eðlilegar aðstæður í Hagaskóla. Auk heimafólks hafa jafnan verið allmargir nemendur utan hverfis í skólanum.
Vesturbærinn byggðist hratt á 6. og 7. áratug aldarinnar og 240 nemenda árgangar gengu í gegnum skólann ár eftir ár. Þegar Miðbæjarskólinn var lagður niður stækkaði skólahverfið. Skólinn var tvísetinn og kennt fram undir kvöld. Nemendafjöldi fór yfir 850 þegar mest var. Í dag eru rúmlega 600 nemendur í Hagaskóla.

Skólastjórar
Fimm skólastjórar hafa leitt starfið í skólanum frá stofnun hans:
- Árni Þórðarson 1958–1967
- Björn Jónsson 1967–1994
- Einar Magnússon 1994–2007
- S. Ingibjörg Jósefsdóttir 2007–2023
- Ómar Örn Magnússon 2023–